Íslenskt danspar,Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir flugu til Kína í gær til að taka þátt fyrir Íslandshönd í heimsmeistaramóti í 10 dönsum.Aðeins eitt par frá hverju landi hefur þátttökurétt.

 Sigurður og Sara eru danspar ársins þriðja árið í röð og er það valið af Dansíþróttasambandi Íslands.

 Heimsmeistaramótið í 10 dönsum fer fram í Shanghai á laugardaginn kemur.

 Þau er nemendur í Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar og eru 18 og 19 ára gömul.

alt