hip_hop_namskeid

Hip Hop og Break

Natasha Monay Royal sér um Hip Hop og Break kennsluna hjá DÍH í vetur. Kennt í íþróttahúsi Setbergsskóla.  

HIP HOP tímar fyrir 10-14  ára verða á fimmtud. og þriðjud. kl.18.00 (2x í viku).
BREAK tímar fyrir 7-10 ára verða á fimmtud.kl. 16.00 og fyrir 11-14 ára á fimmtud. kl. 17.00 (1x í viku).

jazzl_namskeid

Jazzleikskólinn, fyrir 3. - 4. ára

Allt mjög léttir og þroskandi barnadansar, farið í leiki, sungið og kennt undirstaðan fyrir almennan dans. Foreldrar eru með í upphafi námskeiðs og svo í lokin. Kennt á laugardögum í Bjarkarhúsinu. Heitt á könnunni.

barnadansar_namskeid

Barnadansar / Samkvæmisdansar,fyrir 5 - 8 ára

Kenndir hefðbundnir barnadansar og samkvæmisdansar. 
Kennt á laugardögum kl. 11.00 fyrir þá sem vilja æfa 1x í viku.
Kennt á mánud. kl. 17.00 og á laugard. kl. 12.00 fyrir þá sem vilja æfa 2x í viku. Þessi pör geta nú bókað einkatíma eftir samkomulagi til að undirbúa sig fyrir danskeppnir vetrarins. Kennt í Bjarkarhúsinu.

 

 

 

 

hjonahopur_namskeid

Hjónahópar / Parahópar

Tjútt - Mambó - Gömlu dansarnir - Partý dansar - Suðuramerískir dansar og Standard dansar.
Byrjenda- og framhaldshópar. Frábærir danstímar,verðum ballfær eftir eitt námskeið.
Kennt í Bjarkarhúsinu. 
keppnisdans_namskeid

Keppnisdansar A/B og K flokkar

Hægt er að stunda samkvæmisdans sem keppnisíþrótt. 
Þau sem eru lengra komin í keppnisíþróttinni æfa 3x í viku og taka jafnvel fasta einkatíma samhliða hóptímum.
Danspör geta farið og keppt á danskeppnum erlendis þegar þau eru komin í efsta þrep (K flokk) í dansi með grunnaðferð.
zumba_logo

Zumba

Zumba er dansfitness sem byggist upp á skemmtilegum og einföldum sporum, tónlistin er einstaklega skemmtileg og frábrugðin því sem við eigum að venjast í ræktinni. Í tímunum er farið í merenge, raggaeton, salsa og cumbia , ásamt ýmsu fleiru. Zumba er sjóðheitt líkamsræktaræði sem náð hefur gríðarlegum vinsældum hér á landi eins og annars staðar í heiminum. Þetta er einföld og skemmtileg leið til þess að koma sér í gott form. Tímarnir eru eins og einnar stundar partý mikið fjör, mikil brennsla og mikil gleði :) Marta Gígja Ómarsdóttir sér um kennsluna og er hún lærður danskennari og með full kennsluréttindi í Zumba.Hún hefur sérhæft sig í að kenna ZUMBA enda er hún "þrusu" góð !!!!
namskeid_team_dih_small

TEAM DÍH

Keppnishópur DÍH samanstendur af danspörum sem keppa í frjálsri aðferð (F flokki). Þetta eru afrekspörin okkar sem stunda dansinn af fullri alvöru og eru flest komin í heimsklassa.Þessi pör æfa 5x í viku hóptíma,2 klukkutíma í senn og taka öll einkatíma samhliða hóptímum hjá okkar frábærum kennurum sem kenna hjá DÍH. Mikill agi og einbeiting er á öllum æfingum og eru allir að berjast um að leggja sig 100% fram.DÍH býður þessum pörum upp á Power Joga,Ballett og fleira spennandi samhliða samkvæmisdanstímunum. TEAM DÍH hópurinn keppir mikið erlendis á alþjóðlegum keppnum og myndast þá oft mikill keppnisandi meðal paranna sem styðja vel við bakið á hvort öðru þó að öll séu þau að etja kappi við hvort annað.