audur

Auður Haraldsdóttir (Heidi)

Danskennari og framkvæmdastjóri DÍH/Dance teacher and Director of DÍH.                              Hún hefur alþjóðleg dómararéttindi frá WDC (alþj.atvinnusamband danskennara og WDSF (alþj.áhugamannasamband). She have adjudicators licence from WDC and WDSF.

Hún er varaforseti Danskennarasambands Ísland / She is Vice president of the professional Federation of Iceland DÍ.

Auður er Framkvæmdastjóri Lottó Open danskeppninnar/Auður is the Director of Lotto Open dancecompetition.

lizy

Lizý Steinsdóttir

Kennir í hjónahópum.


Er með margra ára reynslu í kennslu og hefur unnið til margra danstitla á sínum keppnsferli í dansi.Hún hefur starfað með Auði Haraldsdóttur í fjölda ára og tekur pör og einstaklinga í einkatíma ef samkomulagi.

max

Maxim Petrov

Rússneskur danskennari sem þjálfar keppnispör/Russian Champion in Latin,teaches Latin to our competitions couples.

Hann er með keppnisreynslu sem dansari og hefur náð langt í sinni grein. Hann kennir suður-ameríska dansa. Hann dansaði og keppti út um allan heim fyrir Íslandshönd fyrir nokkrum árum. Hann hefur unnið marga danstitla og var með þeim bestu í Rússlandi.  

adamkaren

Adam og Karen

Þjálfa keppnispör hjá DÍH/They teach our cometition couples Ballroom and Latin.

Þau eru hjón og eru fyrrverandi Heimsmeistarar í 10 dönsum og margsinnis Evrópumeistarar ásamt fleirum titlum/ Former World- and  European Champions in 10 Dance.

Þau eru bæði með einkatíma og hóptíma.Þau hafa búið í Ástralíu og rekið þar dansskóla en eru alfarið komin heim til Íslands. Þau kenna bæði Ballroom dansa og suður-ameríska dansa.

annasvala

Anna Svala Árnadóttir

Danskennari og kennir í hjónahópum.
Anna Svala lærði til danskennara á sínum tíma hjá Auði Haraldsdóttur og hefur margra ára reynslu sem danskennari.
 
helgahannes

Hannes og Helga Dögg

Þjálfa keppnispör í hóp- og einkatímum.

Hannes er með BA (honor degree) í listdansi og aðstoðar pörin okkar við að beita líkamanum rétt í dansi og hefur einnig verið með þau í einkatímum.

Helga Dögg er fyrrum keppnisdansari og keppti bæði lengi vel fyrir Íslandshönd og vann til margra titla og einnig fyrir England og þá með enskum dansherra sínum. Helga Dögg tekur pörin bæði í einkatíma og er einnig með hóptíma.

annasvala

Björni Ingi Pálsson

Björni Ingi er danskennaranemi hjá DÍH. Hann er með mikla reynslu af samkvæmisdönsum,búinn að keppa í dansi frá því að hann var lítill strákur.Hann er margfaldur Íslandsmeistari og hefur einnig náð langt í keppnum erlendis.Hann tekur danspör einnig í einkatíma.
natasha

Natasha Monay Royal

Kennir Hip Hop og Break hjá DÍH

Er með margra ára reynslu og er alltaf með það nýjasta og flottasta í þessum dönsum.
rakel

Rakel Magnúsdóttir

Hefur keppt í dansi í mörg ár og verður til aðstoðar í A/B og K hópum ásamt því að aðstoða í hjónahópum.

solrun

Sólrún Viðarsdóttir

Kennir Team DÍH Power Yoga.

Sólrún kennir jóga fyrir dansara. Hún er lærður jógakennari frá Guðjóni Bergmann með vottun frá Yoga Alliance og YFG vottun frá Katherine Roberts í Arizona, (jóga fyrir golfara). Ásamt því að kenna jóga fyrir dansara kennir hún Power Yoga og jóga fyrir golfara.

kennari_marta

Marta G. Ómarsdóttir

Kennir Zumba.

Hún er lærður danskennari og meðlimur í DÍ og menntaður Zumbakennari.Hún lærði til danskennara á sínum tíma hjá Auði Haraldsdóttur.Hún er með margra ára reynslu sem danskennari og Zumba kennari.Hún hefur kennt Latin fitness og líkamsrækt í mörg ár