Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar er staðsett í nýja Bjarkarhúsinu við Haukahraun 1 í Hafnarfirði. Þar erum við með alla almenna kennslu í öllum flokkum.
Í Bjarkarhúsinu höfum við ágætis danssal með speglum þar sem kennslan fer fram alla virka daga en þar höfum við einnig afnot að stóra Andra salnum fyrir keppnishópinn okkar þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar, sér búningsklefar dömu og herra, sturtur og fl. Andra salur er full stærð af danskeppnisgólfi.

